Við hjá DataMarket erum sérfræðingar í gögnum. Hvort sem þú ert að leita að hráum tölum í Excel útreikninga, lifandi gagnaveitum eða myndrænni framsetningu á vefnum, þarftu ekki að leita lengra.
DataMarket er með yfir 2.000 gagnaveitur á skrá. Með hjálp þeirra, geta sérfræðingar okkar fundið nánast hvaða gögn sem er. Ef þau eru til, finnum við þau - og ef ekki getur samt vel verið að við getum haft milligöngu um öflun þeirra.
Ef þú þarft sérsniðna vefgræju eða myndræna framsetningu til að gera gögnin enn gagnlegri, getum við líka aðstoðað við það. DataMarket hefur smíðað margvíslegar "gagnagræjur" sem geta leyst úr læðingi það sem í gögnunum býr.