Datamarket

Fjárlagafrumvarpið 2009

Þetta er dæmi um gagnaöflunarverkefni á vegum DataMarket.

Verkefni: Að koma liðum fjárlagafrumvarpsins 2009 ofan í gagnagrunn og búa til notkunar í samsvarandi gagnagræju.

Viðskiptavinur: Eigin verkefni

Verkefnislýsing: Þegar fjárlagafrumvarpið hefur verið lagt fram á Alþingi, er það birt á fjárlagavef fjármálaráðuneytisins - Fjarlog.is. Þar eru gögnin á HTML-formi og skiptast niður á síður eftir ráðuneytum. Gögnin af fjarlog.is voru sótt með sérsmíðaðri "könguló" (e. web crawler), samlesin við upprunalegu gögnin og loks skrifuð í gagnagrunn. Ofan á þessi gögn útbjó DataMarket svo einfalda gagnagræju, sem birtir fjárlögin á formi gagnvirkra súlurita.

Umfang: 2500 fjárlagaliðir ásamt lýsigögnum, s.s. ráðuneytum, númerum ráðuneyta, númerum liða, yfirskrift og sjálfri upphæðinni.

Ekki innskráð(ur)
Skrá inn