Datamarket

Um DataMarket

Lógó DataMarket

DataMarket er gagnamiðlunarfyrirtæki.


Markmið

Markmið DataMarket er að búa til virkan markað fyrir töluleg gögn, tölfræði og önnur töflugögn, óháðan efnistökum, gerð gagna eða gagnasniði.

Forsaga

Töluleg gögn, tölfræði og margskyns töfluupplýsingar eru órjúfanlegur hluti af fyrirtækjarekstri en samt sem áður er ótrúlega erfitt að finna og útvega góð gögn. Gagnalindir eru dreifðar, snið gagnanna eru margvísleg og samkeyrsla gagna úr fleiri en einni gagnalind getur verið mjög snúin, svo ekki sé meira sagt.

Ótal vinnustundir fara í það hjá sérfræðingum og stjórnendum um víða veröld að leita að gögnum, klippa, líma og hreinsa upp gögn, til þess eins að geta unnið með þau í Excel, í gagnagrunnum eða viðskiptagreindarforritum - oft með takmörkuðum árangri.

DataMarket var stofnað til að taka á þessum vandamálum. Við viljum breyta gagnaöflun úr því að snúast um síendurtekin og óhagkvæm verkefni í það að gagnasöfn séu markaðsvara rétt eins og hvað annað. Á sama tíma aukum við tækifærin og stækkum markaðinn fyrir eigendur og veitendur gagna.

DataMarket greinir þarfir þeirra sem leita gagna, kemur þeim í tengsl við réttu gagnaveiturnar og skilar gögnunum á því sniði og á þann máta sem best hentar hverju sinni. DataMarket sér um öll leyfis- og lögfræðiatriði og sér til þess að hvert einasta stak í gögnunum sé rekjanlegt til uppruna síns, hvort sem gagnaveitan er opinber stofnun, markaðsrannsóknafyrirtæki eða opin þjónusta sem byggir á gögnum frá netnotendum.

DataMarket ehf. er íslenskt einkahlutafélag, stofnað sumarið 2008.

Stjórnendur

Hjalmar GislasonHjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri: Hjálmar er óseðjandi áhugamaður um tölvur og tækni. DataMarket er fjórða hugbúnaðarfyrirtækið sem hann setur á fót. Fyrri fyrirtæki hafa verið á sviði leitartækni, farsímahugbúnaðar og smáleikja. Áður en hann stofnaði DataMarket, starfaði Hjálmar sem forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Símanum. Hjálmar er einnig tæknilegur ráðgjafi Já - upplýsingaveitna við þróun og rekstur símaskrárvefjarins Já.is.

hjalmar.gislason@datamarket.net

Gunnlaugur BriemGunnlaugur Briem, Tæknistjóri: Gunnlaugur hefur hannað og smíðað hugbúnað síðan árið 1996, hjá Dímon hugbúnaðarhúsi, Landsbankanum, og nokkrum öðrum fyrirtækjum. Hann er með meistaragráðu í rafmagnsverkfræði frá Stanford University, kennir námskeið í því fagi við Háskóla Íslands, og hefur hlotið verðlaun fyrir kennslu við báða skóla. Gunnlaugur leggur fyrirtækinu til víðtæka tæknikunnáttu auk færni og eldmóðs við að leiðbeina öðrum og hvetja.

gunnlaugur.briem@datamarket.net



Fréttabréf

DataMarket sendir öðru hverju út fréttabréf í tölvupósti um nýjungar og það helsta sem um er að vera hjá okkur. Ef þú hefur áhuga á að fá þetta fréttabréf sent, skráðu þá netfangið þitt hér að neðan.

Afskráning


DataMarket bloggið

Á blogginu finnurðu nýjustu fréttir af DataMarket

DataMarket á Twitter

Þú getur fylgst með því sem er að gerast hjá @DataMarket á Twitter

DataMarket á Facebook

DataMarket á líka síðu á Facebook.

Ekki innskráð(ur)
Skrá inn